Eimskip lætur smíða tvö ný skip

Deila:

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. hefur samþykkt samninga um smíði tveggja nýrra gámaskipa sem verða þau stærstu í flota félagsins til þessa. Skipin, sem verða 2.280 gámaeiningar að stærð, verða byggð hjá China Merchants Jin Ling Shipyard í Nanjing í Kína og afhent á seinni hluta árs 2028.

Skipin verða í eigu ElbFeeder, þýsks hlutdeildarfélags sem Eimskip á 48% hlut í, og mun Eimskip taka þau á tíu ára leigu. Áætluð leiguskuldbinding Eimskips vegna samningsins er um 86 milljónir bandaríkjadollara. Nýsmíðarnar verða að fullu fjármagnaðar í gegnum ElbFeeder.

Þjóna Bláu leiðinni

Nýju skipin munu sinna vöruflutningum á Bláu leið Eimskips milli Reykjavíkur, Rotterdam og Teesport í Bretlandi. Þau koma í stað eldri skipa á leiðinni og munu styðja við aukinn útflutning á ferskum sjávarafurðum og laxi, auk vaxtar í Trans-Atlantic flutningum félagsins.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, segir verkefnið mikilvægt skref í endurnýjun skipaflotans:

„Við sjáum mikil tækifæri með tilkomu nýju skipanna, sérstaklega þegar horft er til aukins útflutnings á ferskum sjávarafurðum og vaxtar í Trans-Atlantic flutningum. Við erum einnig stolt af þeirri framtíðarsýn sem felst í hönnun skipanna, þar sem tekið er mið af orkuskiptum og umhverfismálum.“

Stærri og hagkvæmari

Skipin verða 185 metra löng og 29,4 metra breið og taka 130 gámaeiningum meira en Brúarfoss og Dettifoss, sem eru stærstu skip Eimskips í dag. Hönnun þeirra leggur áherslu á hagkvæman rekstur, orkunýtingu og sveigjanleika fyrir framtíðar orkugjafa eins og metanól eða LNG.

ElbFeeder, sem á sjö gámaskip fyrir, er í meirihlutaeigu þýska skipafélagsins Ernst Russ. Joseph Schuchmann, framkvæmdastjóri Ernst Russ, segir fjárfestinguna marka tímamót:

„Þetta er fyrsta nýsmíða fjárfesting Ernst Russ í langan tíma. Við erum afar ánægð með að ráðast í hana með Eimskip, sem verður langtímaleigutaki skipanna og tryggir þannig styrk verkefnisins.“

Deila: