Skelltu sér aftur á makríl

Deila:

Það eru hraðar ákvarðanir sem þarf að taka þegar kemur að uppsjávarveiðum. Síldarvinnslan greinir frá því á heimasíðu sinni að Beitir NK myndi halda til síldveiða austur af landinu eftir að löndun á kolmunna lyki. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að breyta áætluninni og sigla með skipið í Smuguna til makrílveiða, enda hafa borist fregnir af afar góðri veiði þar síðustu daga.

Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar, segir að á þessum tíma sé bæði veitt síld, kolmunni og makríll. „Því þarf alltaf að meta stöðuna hverju sinni þegar skipuleggja á veiðarnar,“ útskýrir hann.

Skipstjórinn á Beiti, Tómas Kárason, tekur undir að um sé að ræða spennandi tækifæri: „Við töldum að makrílvertíðinni væri lokið hjá okkur en svona breytist þetta með skömmum fyrirvara. Nú berast fréttir af hörkuveiði í Smugunni og hafa skip þar verið að fá hol upp á yfir 700 tonn. Við ljúkum löndun á kolmunnanum um hádegisbil og stefnum út klukkan tvö – fullir bjartsýni.“

Deila: