Iceland Fishing Expo 2025

Sjávarútvegssýningin Sjávarútvegur / Icland Fishing Expo 2025 verður haldin dagana 10.-12. september næstkomandi í Laugardalshöll. Þetta er fjórða sýningin undir þessum merkjum og sú langstærsta hingað til en fyrri sýningar voru árin 2016, 2019 og 2022. Að sýningunni stendur sýningarfyrirtækið Ritsýn sf. og segirst Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri fyirtækisins, finna fyrir miklum áhuga á sýningunni bæði hér innanlands og víða um heim.
Stærsta sýningin hingað til „Sýningin hefur stækkað í hvert skipti hingað til og nú fyllir hún öll sýningarrými Laugardalshallar og útisvæði. Sýningarbásar eru 140 talsins en sýnendur eru mun fleiri því oft eru fyrirtæki sem vinna saman að kynna sig og einnig er talsvert um að fleiri fyrirtæki séu að baki erlendu sýningarbásunum,“ segir Ólafur en fjöldi erlendra sýnenda er einmitt meiri en nokkru sinni fyrr. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga erlendra fyrirtækja að taka þátt í sýningunni og vitum líka af miklum fjölda erlendra gesta sem væntanlegur er hingað til lands víðs vegar að úr heiminum til að koma á sýninguna. Þetta er því stór viðburður í sjávarútvegi sem stöðugt er að festa sig í sessi,“ segir Ólafur.
Nýjungar kynntar – búist við miklum fjölda gesta
Ólafur segir að sýningin í ár verði afar fjölbreytt og áhugaverð. „Á sýningunni eru allar tegundir af fyrirtækjum sem þjóna íslenskum sjávarútvegi. Gestir koma til með að sjá allt það nýjasta í hátækniútbúnaði er tengist fiskvinnslu og útgerð. Þá er mikið af nýjum fyrirtækjum að koma inn með sýningarbása og má þar meðal annars nefna fyrirtæki sem þjóna fiskeldinu, bæði á sjó og landi,“ segir hann og bætir við að sýningin sé ekki aðeins vettvangur til að kynna sér nýjasta nýtt í sjávarútvegi heldur sé hún tækifæri fyrir fólk í greininni að hittast, treysta tengsl og viðskiptasambönd. „Sýningin árið 2022 var fjölsótt og komu þá ríflega 35.000 gestir í Laugardalshöll. Við búumst með sama hætti við mikilli aðsókn í ár og gestum víðs vegar að af landinu, auk fjölda erlendra gesta.“
Þriggja daga hátíð
Sjávarútvegssýningin Sjávarútvegur / Iceland Fishing Expo 2025 stendur yfir þrjá daga. Hún verður opin miðvikudaginn 10. september kl. 14-19 og kl. 10-18 fimmtudaginn 11. september og föstudaginn 12. september.
Fjallað er um sýninguna í nýju tölublaði Sóknarfæris.
