Góð kolmunnaveiði í Rósagarðinum

Deila:

Veiði á kolmunna í Rósagarðinum gengur afar vel um þessar mundir. Barði NK landaði 1.600 tonnum í Neskaupstað á sunnudag og daginn eftir kom Börkur NK með rúmlega 3.100 tonn.

Theodór Haraldsson, skipstjóri á Barða, sagðist á heimasíðu Síldarvinnslunnar ánægður með aflann sem fékkst í fimm holum. Eftir löndun skipti áhöfnin um veiðarfæri og hélt til síldveiða, sem verða í forgangi næstu daga.

Á sama tíma fór Leifur Þormóðsson í sinn fyrsta túr sem skipstjóri á Berki og skilaði hann sér með góðan afla. „Við fengum rúmlega 3.100 tonn í sjö holum á fimm dögum, með 250–700 tonn í holi. Veðrið var gott mestan hluta túrsins en fór að versna undir lokin,“ sagði Leifur og bætti við að næstu skref yrðu að halda áfram í kolmunnanum, þó einnig væri verið að veiða síld og makríl.

Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri hjá Síldarvinnslunni, segist mjög ánægður með hráefnið sem berst úr Rósagarðinum. „Kolmunninn er feitur á þessum tíma og hentar einstaklega vel til vinnslu, bæði fyrir lýsisframleiðslu og aðra vinnslu. Síðan fyrsta löndunin barst 26. ágúst hafa rúmlega 14 þúsund tonn komið að landi og það er ekki hægt að kvarta,“ sagði Hafþór.

Deila: