Nýtt frumvarp um öryggi siglinga

Ríkisstjórnin hyggst í október leggja fram frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja regluverk um öryggi á hafi þar sem mannvirkjum á borð við fiskeldiskvíar, sæstrengi, neðansjávarleiðslur og aðrar hafstöðvar hefur fjölgað mikið undanfarin ár.
Frumvarpið byggir á tillögum Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Landhelgisgæslunnar sem hafa varað við að þróunin gæti annars dregið úr öryggi siglinga.
Helstu breytingar lúta að uppfærðum skilgreiningum í samræmi við Alþjóðastofnun um leiðarmerki á sjó, aukinni ábyrgð og skýrari heimildum Vegagerðarinnar og Samgöngustofu, og heimildum ráðherra til að setja reglugerðir. Þar á meðal eru reglur um umferð ákveðinna skipa á tilteknum svæðum, notkun veiðarfæra og akkerislegu.
Einnig verður tryggð aðkoma Samgöngustofu og Vegagerðarinnar að gerð strandsvæðisskipulags vegna öryggis siglinga.

