Reglubundið viðhald skipa sparar alltaf fjármuni

„Þetta er gríðarlega fjölbreytt og krefjandi vinna en ég hefði ekki verið í þessu starfi í 13 ár ef þetta væri ekki skemmtilegt. Við tökumst á hendur öll verkefni sem snúa að stáli í skipum ef frá er talið aðalvél, gírbúnaður og tölvubúnaður. Allt annað er á okkar starfssviði,” segir Þorleifur Halldórsson, verkstjóri skipaviðgerða á útgerðarsviði HD.
Þorleifur er vélvirkjameistari og véliðnfræðingur að mennt. Fjölbreytt þjónusta HD kynnir þjónustu sína og starfsemi á sýningunni Sjávarútvegur 2025 í Laugardalshöll og leggur þar áherslu á heildstætt þjónustuframboð HD sem nær til ráðgjafar, þarfagreininga, tilboðsgerðar, verkáætlana, stálsmíði, sölu búnaðar og þannig mætti áfram telja. Þorleifur segir að verkefni HD fyrir útgerðir snúi bæði að reglubundnu viðhaldi skipa og tilfallandi verkefnum sem tengjast breytingum eða bilunum.
„Stór hluti verkefna starfsstöðva okkar á Akureyri, Eskifirði og Kópavogi tengist þjónustu fyrir skip og sjávarútveg. Stærsti hópur viðskiptavina okkar á útgerðarsviðinu eru togaraútgerðir og við gerum það sem gera þarf þegar skipin koma í land. Við erum þar af leiðandi mest að vinna í skipunum þar sem þau koma til löndunar en síðan erum við líka með smíðaverkefni hér inni á gólfi hjá okkur þannig að við getum sagt að við séum að vinna í útgerðartengdum verkefnum flesta ef ekki alla daga ársins,“ segir Þorleifur.
Nánar er rætt við hann í nýjasta tölublaði Sóknarfæris.


