Samheldin áhöfn og frábært skip

Deila:

„Þegar lagt er frá bryggju í túr er markmiðið alltaf að gera vel og það á jafnt við um okkur skipstjórnendurna og aðra í áhöfninni. Þetta er því árangur sem allir um borð eiga sinn þátt í að ná,“ segir Einar Númason, skipstjóri á frystitogaranum Sólbergi ÓF 1 en skipið náði nú síðsumars stærsta túr sínum til þessa á Íslandsmiðum. Afli skipsins úr sjó var í heild 1.337 tonn í túrnum sem er að jafnaði tæplega 45 tonn á dag.

Afli skipsins samanstóð af 565 tonnum af þorski, 278 tonnum af ýsu, 260 tonnum af gullkarfa og 187 tonn af ufsa. Aflaverðmæti í túrnum var tæplega 900 milljónir króna. Góð kvótastaða mikilvæg Einar segir að margt leggist á eitt til að túrar gangi svona vel upp en fyrst og fremst að vera á réttum stað þegar fiskurinn gefur sig. Túrinn byrjaði fyrir norðan land en síðan var haldið Vestfjarðamið. „Við höfum góða kvótastöðu og gátum því fiskað vel af ýsu, ufsa og karfa og það gerði gæfumuninn. Það skiptir auðvitað mestu að hafa aflaheimildir til að geta veitt það sem er í boði hverju sinni. Hvað heimildir varðar erum við vel settir á Sólberginu og höfum getað róið stíft þrátt fyrir skerðingar sem hafa verið á undanförnum árum, t.d. í þorskinum,“ segir Einar en skipstjóri á móti honum er Sigþór Kjartansson.

Sólberg er eitt skipa Ísfélagsins hf. eftir sameiningu þess og Ramma hf. Vinnslan á fullu allan sólarhringinn Sem fyrr segir voru afköstin í þessum mikla aflatúr um 45 tonn að jafnaði á sólarhring og nánast aldrei upphald í vinnslunni meðan á túrnum stóð. „Vinnslutopparnir hjá okkur geta oft verið mun meiri en þá skiptir mestu hvernig fiskurinn er. Ef þetta er góður þorskur til vinnslu þá höfum við séð allt upp í um 80 tonna afköst í frystingunni á sólarhring. Það er þó sjaldgæft en oft eru þetta 50-60 tonn þegar vel gengur,“ segir Einar. Þorskaflinn á Sólbergi er unninn í blokkarfryst flök og það á einnig við um ýsu og ufsa. Karfi er hausaður og búkurinn frystur en hausinn bræddur. Aukategundir á borð við t.d. steinbít, hlýra, kola og löngu eru heilfrystar.

„Að lang stærstum hluta er aflinn hjá okkur í frystum flökum. Þorskur er að jafnaði rúmlega 50% í túrunum hjá okkur en var aðeins undir 50% í þessum mettúr enda fengum við góðan afla af karfa og ýsu,“ segir Einar og aðspurður segir hann sjaldgæft að verulegar frátafir verði vegna bilana í vinnslunni um borð. Búnaðurinn gangi heilt yfir mjög vel og hafi gert frá því skipið kom. „Við njótum þess að vera með frábærar áhafnir og vélstjóra sem gjörþekkja allan vél- og tæknibúnaðinn um borð. Þetta er lykilatriði í að halda öllu gangandi frá degi til dags og til að mynda í þessum mettúr okkar má telja frátafir í vinnslu vegna bilana í örfáum klukkustundum allan túrinn. Maður kvartar ekki yfir því,“ segir hann.

Ítarlega er rætt við Einar í nýju tölublaði Sóknarfæris.

Mynd/Þorgeir Baldursson

Deila: