Gestir steyma á sýninguna Sjávarútvegur 2025

Deila:

Mikil aðsókn var að sýningunni Sjávarútvegur 2025 sem hófst í Laugardalshöll í gær en þar kynna hátt á annað hundrað fyrirtæki vörur sínar og þjónustu. Þetta er fjórða sýningin undir þessum merjum og sú stærsta hingað.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, flutti ávarp í setningarathöfn sýningarinnar og veittar voru þrjár viðurkenningar. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi heiðruðu starfsfólk sjávarútvegsfyrirtækja í Grindavík fyrir áræðni, staðfestu og æðruleysi á erfiðum tímum. Jón Steinar Sæmundsson, starfsmaður Vísis hf. veitti þeirri viðurkenningu viðtöku. Þá útnefndi Landssamband smábátaeigenda Arnar Magnússon, eiganda Golu GK í Sandgerði, sem trillukarl ársins. Loks fékk nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine ehf. viðurkenningu Íslenska sjávarklasans og veitti Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring Marine, þeirri vðurkenningu viðtöku.

Sýningin Sjávarútvegur 2025 verður opin kl. 10-18 í dag og á morgun, föstudag.

fulltrúar

Verðlaunahafar við upphaf sýningarinnar Sjávarútvegur 2025 ásamt Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Frá vinstri: Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring Marine ehf., Arnar Magnússon, trillukarl ársins og Jón Steinar Sæmundsson, fulltrúi starfsmanna sjávarútvegsfyrirtækja í Grindavík.

 

 

 

Deila: