Nægir ekki að segja að íslenski fiskurinn sé sá besti

Deila:

Hermann Stefánsson tók nýverið við starfi framkvæmdastjóra Ice Fresh Seafood ehf. sem er sölu- og markaðsfyrirtæki Samherja en félaginu hafði Gústaf Baldvinsson stýrt frá stofnun þess árið 2007. Hermann er mjög kunnugur sjávarútvegi en hann var útgerðarstjóri Borgeyjar á árunum 1995- 1999, framleiðslustjóri hjá Skinney-Þinganesi 1999-2010, framkvæmdastjóri Iceland-Pelagic 2010-2018 og forstjóri ÍSAM 2018-2024.

Á vef Samherja ræðir Hermann um starfið og þá samkeppni sem seljendur íslenskra fiskafurða standa frammi fyrir á hverjum degi á mörkuðum heimsins. Hann segir traust viðskiptasambönd mikils virði. „Samherji og Ice Fresh Seafood hafa náð að byggja upp öflugt sölunet víða um heiminn, þar sem gagnkvæmur skilningur á viðskiptunum er til staðar. Við kappkostum að vera ábyrgur söluaðili sem stendur við gerða samninga, þar sem kaupendur geta gengið að gæðum sem vísum og afhendingu afurða á umsömdum tíma. Ef við stöndum ekki við þessa þætti er hætta á að hillupláss í verslunum glatist, sem getur tekið langan tíma að vinna til baka, enda samkeppnin gríðarlega hörð. Ef veitingahúsin fá ekki fiskinn á réttum tíma er hugsanlegt að hann detti einfaldlega út af matseðlinum, svo dæmi séu tekin.“

Hermann segir ekki nóg að segja viðskiptavinum að íslenski fiskurinn sé sá besti. Fleira þurfi að koma til. „Nei, það eitt og sér er ekki nóg. Seljandinn verður að vera með stöðug gæði og afhenda alla daga ársins. Þá er lykilatriði að vera með stöðuga vinnslu allan ársins hring, eins og Samherji gerir. Þótt Samherji teljist vera tiltölulega stórt fyrirtæki hérna á Íslandi er staðreyndin sú að við erum afskaplega lítið fyrirtæki á alþjóðavísu og þá er rökréttasta svarið að vera tæknivæddur, traustur seljandi með gæða vöru alla daga ársins. Þetta gleymist gjarnan í umræðunni hérna heima um þessa þjóðhagslegu mikilvægu undirstöðuatvinnugrein okkar Íslendinga.“

Greinin birtist fyrst í Sóknarfæri.

Deila: