Stakkaskipti í Þorlákshöfn

„Það má segja að senn sjáum við fyrir endann á umfangsmiklum framkvæmdum hér í höfninni sem hafa staðið yfir frá árinu 2021. Við höfum m.a. lokið við styttingu á Austurgarðinum til að skapa aukið snúningsrými fyrir stærri skipin og einnig hefur Suðurgarður verið lengdur um 250 metra. Við eigum eftir að ljúka við dýpkun hafnarinnar og bæta enn við 60 metra bryggjukanti til að fá aukið rými fyrir skip og báta. Ekki veitir af í þeim gríðarlegu umsvifum sem hér eru alla daga,“ segir Benjamín Ómar Þorvaldsson, hafnarstjóri Ölfuss.
Umbreyting hafnarinnar í gangi Höfnin í Þorlákshöfn hefur tekið stakkaskiptum í þessari framkvæmdalotu og segir Benjamín að ráðist hafi verið í að bæta hafnaraðstöðuna til að mæta vaxandi eftirspurn eftir þjónustu í þessari lífæð á suðurströndinni. Mikil atvinnuuppbygging, m.a. í fiskeldi og svo stórfelldir vöruflutningar til og frá höfninni hafi kallað á þessar aðgerðir. Hann segir að í þeirri hrinu framkvæmda sem nú er senn á enda sé búið að fjárfesta fyrir um 4,5 milljarða króna. „Hafnarstarfsemin hjá okkur hefur breyst á undanförnum árum úr því að vera aðallega hefðbundin löndunarhöfn fyrir fiskafla yfir í vöruflutningahöfn þó löndun á fiski sé áfram umtalsverð,“ segir Benjamín Ómar.
Aðspurður segir hann að ekki sé hægt að líkja nú þegar höfnum framkvæmdum við landeldi í nágrenni Þorlákshafnar við annað en stóriðju og forsenda þeirrar uppbyggingar hafi verið bætt hafnaraðstaða. Bæði þurfi að koma vörum á markaði erlendis en einnig taka á móti aðföngum eins og laxafóðri í þá miklu ræktun sem sé í pípunum. „Að öllu samanlögðu er höfnin hér í Þorlákhöfn orðin ein mikilvægasta höfn landsins og þjónustar í raun öllu suðvesturhorninu þar sem vel yfir 80% landsmanna búa. Hér í Þorlákshöfn eins og annars staðar er höfnin lífæð samfélagsins.“



