Fékk svar við fyrirspurn um strandveiðar

Deila:

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, hefur fengið svar við fyrirspurn sinni um strandveiðar. Í sumar sendi hún um fyrirspurn um hvaða bátar hafi fengið strandveiðileyf, hvernig leyfin skiptast eftir löndunarsvæðum og hverjir ábyrgðarmenn/eigendur skipanna eru.

„Tilgangurinn með strandveiðikerfinu er að stórum hluta sagt vera til að stuðla að nýliðun. Ég held að það sé mikilvægt að það liggi fyrir hvort við séum að ná þeim markmiðum,“ sagði hún meðal annars annars.

Atvinnuvegaráðherra hefur nú svarað fyrirspurninni með töflu þar sem þessar upplýsingar koma fram. Hvort Nanna Margrét sé einhverju nær, skal ósagt látið.

Töfluna má sjá hér.

Deila: