Börkur með farm af kolmunna

Börkur NK landaði í gærmorgun 2.530 tonnum af kolmunna í Neskaupstað eftir góðan túr í Rósagarðinum og á Þórsbankanum innan íslenskrar lögsögu. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.
Samkvæmt skipstjóranum, Hjörvari Hjálmarssyni, fékkst aflinn í sjö holum, þar sem dregið var í 10–22 klukkustundir. Aflinn var á bilinu 300–440 tonn í hverju holi. „Þetta er hin þokkalegasta veiði og fiskurinn stór og feitur, sem hentar afar vel í vinnsluna,“ sagði Hjörvar.
Skip Síldarvinnslunnar hafa nú veitt um 17 þúsund tonn af kolmunna á þremur vikum á svæðinu, sem telst mjög gott. Auk íslensku skipanna eru þar nú fjögur færeysk skip.
Börkur mun á næstunni hefja síldveiðar og tekur því hlé á kolmunnaveiðum.

