Fjarstýrðu hlerarnir hafa reynst vel

Þegar útgerðarfélagið Gjögur tók Hákon ÞH 250 í notkun á síðasta ári, var jafnframt fjárfest í nýjustu gerð fjarstýrðra Thyborøn-hlera, týpu 42, 12 m² að stærð og 4.700 kg að þyngd. Hlerarnir eru þeir fyrstu sinnar tegundar sem settir eru á íslenskt skip. Nú, eftir tæpt ár í notkun, liggur fyrir að reynslan er mjög jákvæð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hampiðjunni.
Jón Þór Björnsson, skipstjóri á Hákoni, segir hlerana hafa staðist allar væntingar. „Þetta eru bestu hlerar sem ég hef dregið. Þeir eru stöðugir í köstum og hífingum, liprir í allri vinnslu og ótrúlega léttir í drætti miðað við þyngd,“ segir hann. Einnig hrósar hann endingunni: „Þetta er alvöru járn, ekkert pjátur, og þeir koma alltaf réttir upp. Það er frábært að vinna með þá.“
Fyrstu mánuðina voru hlerarnir notaðir án stýribúnaðar, en þegar hann bættist við tók vinnan enn frekari framförum. „Þetta er algjör bylting,“ segir Jón Þór. „Við misstum þá ekki upp úr yfirborðinu í allt sumar þrátt fyrir krappar beygjur. Trollið heldur sér miklu betur, mistog og skekkja eru minni og það fer betur með veiðarfærin.“
Hann útskýrir að með fjarstýringunni sé hægt að breyta stöðu og virkni hleranna úr brúnni á meðan veiðum stendur. „Við getum létt á snúningum í miklum straumum með því að minnka skverið og veiðarfærið klárar sig miklu betur aftur inn í beygjum,“ segir hann.
Ákvörðunin um fjárfestingu í hlerunum var tekin eftir ítarlega skoðun á mismunandi valkostum. „Við sáum strax að þetta væri rétta leiðin – og ég sé ekki eftir því,“ segir skipstjórinn og bætir við að tækniþjónustan sé til fyrirmyndar.
Í dag eru um 40 skip víðs vegar um heiminn búin fjarstýrðum hlerum frá Thyborøn. Hampiðjan Ísland er umboðsaðili Thyborøn á Íslandi og sá um söluna til Gjögurs.

