Hanna Kata: Leiðréttingin var löngu tímabær

Deila:

Hanna Katrín Friðriksson hefur tekið stórar ákvarðanir á sínu fyrsta ári í embætti atvinnuvegaráðherra. Hún er með fleiri stór mál í vinnslu í ráðuneytinu, svo sem úttekt á fyrirkomulagi hafrannsókna, sameiningu stofnana og frumvarp sem setur skýrari ramma um fiskeldi.

„Viðbrögð mín snúa auðvitað fyrst og fremst að því að þarna er stór hópur fólks að missa vinnuna. Það er alltaf erfitt að fá slíkar fréttir. Þetta er alvarlegt fyrir það fólk sem þarna á í hlut. Þetta er líka, í þessu tilfelli, högg fyrir sveitarfélagið. Þetta er stór vinnustaður og það snertir samfélagið þegar svona kemur upp.“

Þetta segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra um fregnir af uppsögnum Vinnslustöðvarinnar um þar mánaðamót. 50 manns var sagt upp störfum en fyrirtækið hefur skrifað uppsagnirnar á hækkun veiðigjalda. Hanna Kata bendir á að alls kyns þættir spili inn í þegar fyrirtæki þurfi að grípa til slíkra örþrifaráða.

„Til dæmis hvernig rekstraraðstæður hafa verið árin á undan og hvernig hagræðingaraðgerðir hafa gengið. Svo skipta almennar efnahagsaðstæður líka máli, svo sem vextir og verðbólga. Og svo auðvitað aflabrögð og mat á framtíðinni. Ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það, þetta er umtalsverð hækkun á veiðigjöldum en þessi leiðrétting var hins vegar löngu tímabær. Hún spilar þarna að einhverju leyti inn í þegar um er að ræða fyrirtæki sem hafa átt í ákveðnum erfiðleikum. Slíkar fréttir hafa borist af Vinnslustöðinni, ekki síst í tengslum við þessa tilteknu vinnslu eftir kaup Vinnslustöðvarinnar. Þannig að þetta var kannski ekki alveg óviðbúið.“

Hanna Kata segir að jafnvel þótt þetta séu vondar fréttir fyrir samfélagið í Eyjum sé hún að horfa á stærri mynd, þegar kemur að hækkun veiðigjalda.

Ítarlegt viðtal við Hönnu Kötu er að finna í nýjasta tölublaði Ægis.

Deila: