Áhersla á blandaðan afla

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 117 tonnum á Seyðisfirði í gær. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við Hjálmar Ólaf Bjarnason, skipstjóra á Gullver, sem var ánægður með túrinn.

„Hann gekk vel. Þetta var þægilegur túr í alla staði og við vorum fjóra sólarhringa að veiðum,“ sagði Hjálmar Ólafur. „Við byrjuðum í ýsu á Gerpisflaki og þar var svona nudd. Þaðan var siglt í átta tíma á Digranesflak og þar fengum við þorsk. Fiskurinn var góður og veðrið fínt allan tímann þannig að það er ekki yfir neinu að kvarta. Við þurfum þó helst að blanda aflann vel, það dugar ekki að fylla skipið alltaf af þorski því þá verður kvótastaðan fljótt þröng.“

Gullver hélt á ný til veiða skömmu eftir að löndun lauk.

Á Djúpavogi landar Jóhanna Gísladóttir GK fullfermi í dag. Skipstjórinn, Einar Ólafur Ágústsson, segir aflann mestan þorsk, fenginn á Glettingi. „Það er dálítil ýsa með þorskinum en mikið haft fyrir henni. Það er bara mjög erfitt að ná í ýsuna,“ sagði hann og bætti við að skipið haldi aftur til veiða síðar í dag.

Togararnir Bergey VE og Vestmannaey VE koma til Neskaupstaðar í dag með 30–40 tonn hvor. Skipin reyndu einkum við ýsu á Austfjarðamiðum en veiðin gekk heldur erfiðlega. Ýsu er víða leitað þessa dagana með takmörkuðum árangri, þó sumir telji að veiðin muni batna með kaldara veðri. Gert er ráð fyrir að bæði skipin haldi aftur til veiða í kvöld.

Deila: