Krefst skýringa á verðmuni á uppsjávarafla

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM – félags vélstjóra og málmtæknimanna, var gestur Aríels Péturssonar í hlaðvarpinu Sjókastið nýverið. Þar ræðir hann opinskátt um lífið á sjó og baráttuna fyrir bættum kjörum sjómanna.
Á meðal þess sem ber á góma er hinn mikli verðmunur á milli landa þegar kemur að uppsjávarafla, eins og hann hefur áður bent á. Íslensku skipin fengu að hans sögn á nýliðinni makrílvertíð aðeins um 40% af því verði sem færeysk skip fengu.
„Þegar íslensku skipin fara til Færeyja þá fá þau þetta verð líka,“ segir hann um verðmuninn eftir því hvort landað er í Færeyjum eða á Íslandi. „Ég vil bara fá útskýringar, segir formaðurinn meðal annars í viðtalinu.
Hér fyrir neðan má sjá þáttinn í heild sinni.

