Góð byrjun á síldveiðinni

Deila:

Veiði og vinnsla á yfirstandandi síldarvertíð gengur vel og hafa bæði Beitir NK og Börkur NK landað afla sínum í Neskaupstað síðustu daga. Frá þessu er sagt á vef Síldarvinnslunnar.

Beitir NK kom til hafnar á fimmtudag með 1.410 tonn af norsk-íslenskri síld og íslenskri sumargotssíld. Samkvæmt Tómasi Kárasyni skipstjóra fékkst aflinn í þremur holum á Glettinganesflakinu. „Við fengum um 400 tonn í tveimur holum og 610 tonn í því síðasta. Hér um borð eru allir kampakátir,“ sagði hann, en í ferðinni var einnig prófað nýtt þriggja vængja troll frá Hampiðjunni sem reynst hefur vel.

Börkur NK kom til Neskaupstaðar aðfaranótt laugardags með 1.700 tonn af síld. Skipstjórinn, Hjörvar Hjálmarsson, sagði veiðina hafa gengið afar vel á Litlagrunni á Héraðsflóa. „Aflinn var frá 130 tonnum og upp í 570 tonn í holi. Síldin er blönduð en hlutfall íslenskrar sumargotssíldar var hátt,“ sagði hann. Löndun úr skipinu hófst í morgun og er áætlað að hún taki einn til tvo sólarhringa.

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar hófst vinnsla á afla Beitis þegar hreinsun hússins var lokið. Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri verksins, segir allt hafa gengið hnökralaust. „Stærri síldin er heilfryst en sú smærri fer í samflök. Þetta hefur gengið eins og best verður á kosið hingað til,“ sagði hann.

Deila: