Leiðréttir umfjöllun um togveiðar

Deila:

Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri á Umhverfissviði Hafrannsóknastofnunar, hefur leiðrétt ummæli sín úr viðtali í kvöldfréttum RÚV 16. september þar sem hún sagði að togveiðar væru ekki stundaðar innan 12 sjómílna. Í yfirlýsingu segir hún að það hafi verið rangt – togveiðar séu vissulega stundaðar innan 12 mílna, en hefðbundnar botnvörpuveiðar séu þó bannaðar innan ákveðinna svæða, m.a. frá Bjargtöngum að Lóni í Öræfum og innan fjarða og flóa.

Hrönn útskýrir jafnframt að þegar hún talaði um að fiskveiðistjórnunarkerfið væri „gott“ hafi hún átt við að það standi sterkari stoðum en mörg önnur sambærileg kerfi í heiminum, þó áskoranir séu enn til staðar. Hún bendir á að helstu nytjastofnar við Ísland séu almennt í betra ástandi en margir systurstofnar annars staðar.

Í yfirlýsingunni leggur Hrönn áherslu á að samfélagsumræða um aukna verndun hafsvæða sé brýn og nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða til að vernda vistkerfi sjávar og hafsbotns. Hún minnir á að botnsnertanleg veiðarfæri hafi valdið miklu raski í gegnum tíðina, einkum á síðustu öld þegar áður ósnert svæði voru tekin til veiða.

Stefna stjórnvalda er að vernda 30% hafsvæðis Íslands fyrir árið 2030. Hrönn segir að það sé stórt verkefni þar sem margt þurfi að huga að og byggja ákvarðanir á vísindalegri þekkingu. Hafrannsóknastofnun hafi undanfarin ár unnið að kortlagningu búsvæða og lagt til verndun á viðkvæmum vistkerfum, s.s. kóral-, svampa- og neðansjávarhverasvæðum, auk þess sem stofnunin taki þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum á sviðinu.

„Leiðin að niðurstöðu um vernd svæða kallar á víðtækt samstarf og samtal,“ segir Hrönn, og bætir við að þótt skoðanir séu skiptar um leiðir og áherslur sé jákvætt að samfélagið tali almennt fyrir því að standa vörð um íslenskar sjávarauðlindir.

Deila: