Sakar ASÍ um pólitískan leik

Arnar Hjaltalín, formaður stéttarfélagsins Drífanda í Vestmannaeyjum, gagnrýnir miðstjórn ASÍ fyrir að nota nýlegar uppsagnir í fiskvinnslu í pólitískum tilgangi. Þetta kemur fram í frétt á vef Eyjafrétta.
Um 50 manns misstu vinnuna í Eyjum, þar af margir eldri starfsmenn, þegar Vinnslustöðin réðist í uppsagnir. Fyrirtækið hefur kennt veiðigjöldunum um. Arnar segir að störfin séu horfin fyrir fullt og allt og að þetta sé mikið högg fyrir samfélagið.
Hann tekur undir áherslu á sameign þjóðarinnar á sjávarauðlindum en bendir á að landsbyggðin sitji eftir þegar kemur að aðgangi að rafmagni, heitu vatni og öðrum grunnauðlindum á sanngjörnu verði.
Arnar þakkar Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR, fyrir stuðning en segir að Víðir Reynisson sé eini þingmaðurinn sem hafi sýnt málinu áhuga.
„Uppsagnirnar eiga ekki að verða tól í pólitískri baráttu,“ segir Arnar, sem leggur áherslu á að stærstu ógnirnar fyrir byggðarlög felist í kaupum á útgerðum úr heimabyggð og misskiptingu auðlinda.

