Þorskur uppistaða aflans

Deila:

Ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni lönduðu allir afla sínum í byrjun vikunnar. Jóhanna Gísladóttir GK landaði 45 tonnum í Grindavík á mánudag, mest þorski, ufsa og ýsu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Á Seyðisfirði landaði Gullver NS 95 tonnum, aðallega þorski. Í Vestmannaeyjum lönduðu Vestmannaey VE og Bergey VE báðar fullfermi, með blandaðan afla þar sem þorskur vó þyngst.

„”Við komum með fullt skip og var aflinn blandaður, mest þorskur en einnig töluvert af ýsu, ufsa og kola. Veiðar hófust í Lónsbugtinni og síðan haldið í Sláturhúsið þar sem fékkst bæði ýsa og koli. Þá lá leiðin á Örvæntingu og við Festukransinn þar sem fékkst bæði þorskur og ufsi. Loks var haldið á Grunnfótinn og að lokum aftur á Örvæntinguna þar sem við kláruðum,” er haft eftir Ragnari Waage Pálmasyni, skipstjóra á Bergey.

Skipin halda aftur til veiða síðar í vikunni, Jóhanna Gísladóttir á Vestfjarðamið, Gullver á morgun og Vestmannaeyjaskipin á föstudag.

Deila: