First Water byrjar vinnslu á 5 kílóa laxi til útflutnings

Landeldisfyrirtækið First Water hefur hafið vinnslu og pökkun á 5 kílóa slægðum laxi til útflutnings og verður þar með eitt af fyrstu fyrirtækjum heims til að bjóða slíka vöru. Fyrsti framleiðsluskammturinn hefur þegar verið seldur til Bandaríkjanna og Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Í sumar tók fyrirtækið í notkun fyrstu yfirbyggðu 25 metra eldistankana á svæði sínu við Þorlákshöfn. Fjórir af átta tönkum eru nú fullnýttir og gera kleift að framleiða hágæðalax með stöðugu framboði allt árið. Tankarnir eru lokaðir og búnir fullkomnum hreinsibúnaði sem tryggir heilnæmt eldisumhverfi og hreinna útfallsvatn en sjórinn í nágrenninu.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, segir áfangann mikilvæg tímamót fyrir félagið. Fyrsta uppbyggingarfasanum af sex er ætlað að ljúka árið 2027 og mun framleiðslugeta hans nema 10.000 tonnum af slægðum laxi.
