Framleiðsla á jólasíld hófst hjá Síldarvinnslunni

Síldarvinnslan hóf í vikunni framleiðslu á jólasíld í fiskiðjuverinu í Neskaupstað, en hefðin hefur verið við lýði um áratugaskeið. Notuð er norsk–íslensk gæðasíld sem flökuð er strax við löndun, skorin í bita og látin liggja í pækli og edikslegi áður en hún er fullunnin með sykri, grænmeti og kryddum. Nákvæmar uppskriftir eru þó áfram framleiðsluleyndarmál.
Framleiðslunni stýra Oddur Einarsson og Eyðun Simonsen sem byggja á langri reynslu starfsfólks fyrirtækisins. Stemningin í verinu var góð þegar fyrstu bitarnir fóru í ediksleg í gær og ljóst þykir að jólasíldin verður engu síðri en fyrri ár.
Síldin er ætluð starfsfólki Síldarvinnslunnar og aðstandendum, en einnig fær líknarfélagið Hosurnar tiltekinn skammt sem selt er til styrktar Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað.

