Samfelld síldarvinnsla í Neskaupstað

Deila:

Vinnsla á síld hefur verið samfelld í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að undanförnu. Beitir NK kom með 1.000 tonn á miðvikudagskvöld og lauk vinnslu á aflanum úr honum á föstudagsmorgun. Þá var Börkur NK kominn að landi með 1.300 tonn og þegar vinnslu á þeim afla lauk var Beitir kominn á ný með 1.560 tonn sem byrjað var að vinna í nótt. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við Hálfdán Hálfdánarson, skipstjóra á Berki.

„Þetta getur vart verið betra. Veiðin fer að mestu fram á Héraðsflóanum og í síðasta túr vorum við utarlega í honum. Þetta er alltaf sama fína síldin. Meirihluti síldarinnar er norsk – íslensk en breytilegt er hve hátt hlutfall íslenskrar sumargotssíldar er í aflanum. Við fengum þessi 1.300 tonn í síðasta túr í fjórum holum og vorum rétt rúmlega sólarhring að veiðum,” er haft eftir Hálfdáni. Ólafur Gunnar Guðnason á Beiti er sömuleiðis sáttur við gang veiðanna.

„Við komum inn síðdegis í gær eftir stutta veiðiferð. Aflinn fékkst í þremur holum í Syðri holunni á Héraðsflóanum. Það voru ein fimm skip að veiða á sama blettinum og þau fengu öll góðan afla. Síldin er stór og falleg og ekki undan neinu að kvarta.”

Deila: