Þorsteinn hættur sem forstjóri

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta gerði hann í kjölfar þess að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ákvað að auglýsa embættið laust til umsóknar að loknum skipunartíma Þorsteins næsta vor.
Vísir greindi fyrst frá þessu. Þorsteinn segist líta svo á að hann njóti ekki trausts ráðherra.
„Mér var orðið ljóst að ég nyti ekki trausts ráðherra til að gegna embættinu áfram. Ég hef því beðist lausnar frá embætti forstjóra. Það er nú í vinnslu,“ er haft eftir Þorsteini á Vísi.
Hann segist ekki munu sækja um stöðuna.
