Leggja til mikinn niðurskurð í makríl og kolmunna

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) hefur birt ráðgjöf um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2026. Niðurstöðurnar sýna mikinn breytileika milli stofna. Hafró greinir frá.
Norsk-íslensk vorgotssíld – Lagt er til 33% aukning veiðiheimilda, í 534 þúsund tonn. Ástæðan er meðal annars að árgangar frá 2021 og 2022 reynast sterkari en áður var metið.
Makríll – Lagt er til 70% niðurskurður í veiði, niður í 174 þúsund tonn. Hrygningarstofninn er kominn undir varúðarmörk og stofninn því talinn viðkvæmur.
Kolmunni – Lagt er til 41% minni veiði, eða 851 þúsund tonn. Nýjar mælingar sýna að stofninn er minni en áður var talið, meðal annars vegna lítilla árganga og mikils veiðidauða.
Þrátt fyrir að ICES leggi fram ráðgjöf á hverju ári hefur ekki náðst samkomulag milli ríkjanna sem nýta stofnana. Þjóðirnar hafa því einhliða ákveðið veiðiheimildir og veitt langt umfram ráðgjöf síðustu ár.