Hanna ræður Eggert Benedikt tímabundið

Deila:

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur sett Eggert Benedikt Guðmundsson tímabundið í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar en núverandi forstjóri stofnunarinnar hefur óskað eftir leyfi út sinn skipunartíma sem er til marsloka næsta árs. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir að Eggert Benedikt sé verkfræðingur með MBA-gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Hann hafi verið forstjóri HB Granda frá 2005-2012 og forstjóri N1 frá 2012-2015. Áður hafi Eggert Benedikt um árabil unnið við viðskiptaþróun hjá Philips Electronics í Belgíu og Bandaríkjunum.

Undanfarið hafi Eggert Benedikt unnið að málefnum sjálfbærrar þróunar sem forstöðumaður Grænvangs og nú síðast sem leiðtogi sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu.

Eggert Benedikt hefur að sögn þegar hafið störf.

Deila: