Málstofa um hafstrauma og loftslag

Hafrannsóknastofnun heldur málstofu miðvikudaginn 9. október kl. 12.30 þar sem Lars Henrik Smedsrud, prófessor við Háskólann í Bergen, fjallar um hita- og seltuhringrásina í Norður-Atlantshafi. Erindi hans ber yfirskriftina: „Eru vísbendingar um að hita- og seltuhringrásin í Norður-Atlantshafi sé að veikjast?“
Í fyrirlestrinum verður m.a. farið yfir varmaflutning með hafstraumum til Norður-Íshafsins frá árinu 1900 og þróun á hafís og sjávarhita. Niðurstöðurnar benda til aukins varmaflutnings norður á bóginn, sem stangast á við spár um veikingu hringrásar Atlantshafsins (AMOC).
Lars Henrik Smedsrud er virtur sérfræðingur í heimskautahaffræði með mikla reynslu af vettvangsrannsóknum og alþjóðlegu vísindastarfi.
Málstofan fer fram í fyrirlestrarsal Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 og verður einnig í streymi á Teams.


