Tugmilljarða tekjutap blasir við uppsjávarfyrirtækjum

Deila:

Útlit er fyrir mikinn tekjusamdrátt hjá uppsjávarfyrirtækjum eftir að Alþjóðahafrannsóknarráðið kynnti nýja ráðgjöf um veiðar á makríl, kolmunna og síld. Lagt er til 70% minni veiðar á makríl og 41% minni veiðar á kolmunna en í ár, en ráðlögð er þriðjungshækkun í síldarveiðum. Vísir greinir frá þessu.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir samdráttinn mikið áfall. „Þetta getur þýtt 30 til 35 milljarða tekjuskerðingu fyrir greinina,“ segir hann.

Nú er beðið í ofvæni eftir loðnuráðgjöf sem gæti ráðið úrslitum um stöðu margra vinnslna á næsta ári. „Ef loðnan bregst enn á ný blasir lítið annað við en að fyrirtækin þurfi að draga saman seglin,“ segir Gunnþór við Vísi.

Deila: