Góð veiði hjá ísfisktogurum

Ísfisktogararnir Jóhanna Gísladóttir GK, Vestmannaey VE og Bergey VE hafa allir landað góðum afla að undanförnu, að því er segir á vef Síldarvinnslunnar.
Jóhanna Gísladóttir landaði fullfermi af gullkarfa í Grundarfirði á fimmtudag og síðar um 50 tonnum í Grindavík á mánudag. Skipstjórinn Smári Rúnar Hjálmtýsson segir karfaveiðina í Víkurálnum hafa gengið vel, en tregt hafi verið að fá þorsk og ýsu vestur af landinu.
Á Vestmannaey veiddist nær eingöngu þorskur á stuttum tíma, að sögn skipstjórans Egils Guðna Guðnasonar. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, segir aflann þar hafa verið blandaðan, mest þorsk og ufsa en einnig ýsu og karfa.
Vestmannaey og Bergey sigldu eftir löndun til Neskaupstaðar til að gangast undir haffærisskoðun.

