Forstjóri gagnrýnir þorskígildi

Deila:

Í nýlegum pistli vekur Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, athygli á því að útreikningar Fiskistofu á þorskígildum endurspegli ekki raunverulegt verðmæti aflans.

Hann bendir á að samkvæmt gildandi stuðlum séu þorskígildi 10 þúsund tonna af grálúðu næstum jafnmörg og þorskígildi 90 þúsund tonna af makríl. Tilgangur útreikninganna sé að setja verðmæti annarra tegunda í samhengi við þorsk.

„En svo er alls ekki,“ skrifar Guðmundur og bendir á að raunverulegt verðmæti 90 þúsund tonna af makríl sé þrisvar sinnum meira en verðmæti 10 þúsund tonna af grálúðu.

Brim spyr því hvort Fiskistofa sé með röng gögn eða hvort lagaákvæði 19. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 um þorskígildisstuðla séu óskýr. Fyrirtækið hefur ítrekað bent á að stuðlarnir séu gallaðir og kallar eftir endurskoðun þeirra til að þeir endurspegli betur verðmæti og raunverulegar aðstæður í sjávarútvegi.

Guðmundur spyr að lokum: „Hvernig er hægt að skilja umræðu um þorskígildi eða nota þessi þorskígildi sem stjórntæki í okkar sjávarútvegi?“

Deila: