Góð veiði hjá línuskipum Vísis austur af landinu

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa að undanförnu verið við veiðar austur af landinu og hafa aflabrögðin verið mjög góð. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.
Páll Jónsson landaði í Neskaupstað og síðar á Djúpavogi. Samkvæmt skipstjóranum, Jónasi Inga Sigurðssyni, fengust alls 128 tonn í fimm lögnum, aðallega þorskur. „Við byrjuðum á að taka þrjár lagnir á Héraðsflóanum og fengum 82 tonn. Eftir löndun vegna brælu héldum við aftur á miðin og fengum þá 46 tonn til viðbótar. Þetta er fín veiði og menn sáttir,“ sagði Jónas Ingi.
Sighvatur landaði á Djúpavogi eftir vel heppnaðan túr. Skipstjórinn, Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, sagði aflann hafa verið 105 tonn í fimm og hálfri lögn, einnig mestmegnis þorskur. „Við vorum bæði á Héraðsflóanum og á Bjarnareyjarbleyðunni. Fiskurinn er stór og fallegur, meðaltalsþyngdin um fjögur kíló. Þetta var fínasti túr, þrátt fyrir að kalt hafi orðið síðustu dagana. Menn geta þó ekki kvartað, það er komið haust,“ sagði hann.
Bæði skipin héldu strax aftur til veiða að löndun lokinni.

