Ný tækni breytir vinnslu í sjávarútvegi

Deila:

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og tæknilausnir í vél- og rafeindabúnaði hafa orðið sífellt mikilvægari í vinnslu sjávarafurða. Samherji er eitt þeirra fyrirtækja sem hefur lagt ríka áherslu á þróun og nýsköpun á þessu sviði. Um það er fjallað á vef fyrirtækisins.

Atli Dagsson, tæknistjóri landvinnslu Samherja, segir þar að innan félagsins hafi verið byggð upp dýrmæt þekking sem skapi möguleika á að hanna og framleiða sértækar lausnir, oft í samvinnu við tæknifyrirtæki. „Við viljum vera leiðandi í framleiðslu hágæðaafurða á heimsvísu. Hér starfar fólk með víðtæka menntun og reynslu í skapandi andrúmslofti frumkvöðla, og saman höfum við þróað margvíslegar lausnir sem gera vinnslurnar öflugri í samkeppnisumhverfi,“ segir hann.

Þrívíddarprentun og róbótar í daglegri notkun

Samherji hefur á undanförnum árum aukið verulega notkun þrívíddarprentara, bæði á Dalvík og Akureyri. Þar eru prentaðir út fjölbreyttir hlutar sem oft fást ekki með skömmum fyrirvara frá framleiðendum. „Þróunin í þrívíddarprentun er hröð og notkunin á örugglega eftir að aukast enn frekar. Í raun er hægt að prenta út hvað sem er, en búnaðurinn kallar á sérhæfða þekkingu sem góðu heilli er til staðar hjá okkur,“ útskýrir Atli.

Einnig hefur fyrirtækið tekið í notkun nýja vélasamstæðu sem setur fiskmarning í öskjur sem síðan eru frystar. Samkvæmt Atla er þetta fyrsta vélasamstæðan sinnar tegundar í fiskvinnslu, hönnuð að mestu af starfsfólki Samherja. Þá hefur nýr róbóti, þróaður í samstarfi við sjálfvirknifyrirtæki, verið tekinn í notkun til að raða frauðplastkössum á vinnslulínuna.

Nýsköpun í fyrirrúmi

Atli segir að Samherji sé stöðugt með nokkur nýsköpunarverkefni í gangi. „Það er alltaf gaman að sjá hugmyndir verða að veruleika. Hér eru allir áhugasamir og leggja mikið á sig til að ná markmiðum. Það er ekki ofsagt að Samherji sé öflugt nýsköpunarfyrirtæki – og við stefnum á að vera áfram í fremstu röð,“ segir hann.

Deila: