Engin rækjuveiði fyrir vestan

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að rækjuveiðar verði ekki heimilaðar í Arnarfirði né Ísafjarðardjúpi fiskveiðiárið 2025/2026. Forsendur ráðgjafar má finna hér. Þetta kemur fram á vef Hafró.
Stofnvísitala rækju í Arnarfirði hefur að sögn farið lækkandi frá árinu 2022. „Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2025 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011. Vísitala þorsks var yfir meðallagi. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Arnarfirði og veiðar má nálgast hér.”
Fram kemur að stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi hafi mælst undir skilgreindum viðmiðunarmörkum. „Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004 og frá árinu 2020 hafa þær verið mjög háar í sögulegu samhengi. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar í Ísafjarðardjúpi og veiðar má nálgast hér. ”


