Heimsókn frá Grænlandi

Jannik Holm, svæðisstjóri hjá systurstofnun Fiskistofu í Nuuk, Grønlands Fiskeri- og Jagtkontrol, dvaldi nýverið á Íslandi í tengslum við samstarf stofnananna. Í heimsókn sinni tók hann þátt í drónaeftirliti með Arnari og Óla Þór, starfsmönnum veiðieftirlits Fiskistofu á Akureyri, og lýsti mikilli ánægju með samstarfið.
„Þeir eru toppmenn með mikla þekkingu,“ sagði Jannik að loknu eftirlitinu.
Á meðan dvölinni stóð heimsótti Jannik einnig starfstöð Fiskistofu í Hafnarfirði, þar sem hann fór í vettvangseftirlit með Sigurði Birgi, eftirlitsmanni Fiskistofu. Að heimsókn lokinni hélt hann áfram til Austur-Grænlands til frekari starfa, en gerði stuttan viðkomustað á Íslandi á heimleið, þar sem ekki er í boði beint flug milli Austur-Grænlands og Nuuk.
Á vef Hafró segir að heimsóknir sem þessar skipti miklu máli til að viðhalda nánu samstarfi og traustum tengslum milli systurstofnana á sviði eftirlits og fiskveiðistjórnunar á norðurhveli. Þær skapi jafnframt mikilvægan vettvang fyrir miðlun þekkingar og reynslu, sem styrki starf beggja aðila til framtíðar.
