Kortleggja eignarhald í sjávarútvegi

Alþingi samþykkti nú síðdegis skýrslubeiðni Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um að kortleggja eignarhald tuttugu stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins og tengsl eigenda þeirra við óskyldan rekstur í íslensku atvinnulífi. Dagur greinir frá þessu á samfélagsmiðlum.
Að sögn Dags hófst verkefnið að frumkvæði hans síðastliðið vor, en byggir á eldra máli sem Hanna Katrín Friðriksson lagði fram áður en hún tók við embætti sem atvinnuvegaráðherra.
„Ýmislegt bendir til þess að arður af auðlindinni hafi aðeins að litlu leyti runnið til þjóðarinnar,“ segir Dagur. „Auðsöfnun í sjávarútvegi hefur veitt fyrirtækjum og eigendum þeirra forskot og tækifæri til umfangsmikilla fjárfestinga í óskyldum rekstri. Mikilvægt er að varpa ljósi á þessa þróun sem staðið hefur um árabil, og vonandi líður ekki á löngu þar til skýrslan verður birt.“


