Gagnrýnir skattbreytingar á skemmtiferðaskip

Hafnarstjóri Faxaflóahafna, Gunnar Tryggvason, gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir þrjár breytingar á skattheimtu af skemmtiferðaskipum og segir áhrif þeirra ekki hafa verið metin. Breytingarnar geti leitt til minni tekna ríkisins, þar sem ráðherra sé „öfugu megin á Laffer-kúrfunni“, að sögn Gunnars í samtali við Vísi.
Breytingarnar fela meðal annars í sér innleiðingu innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa, afnám tollfrelsis hringsiglingaskipa og virðisaukaskattsskyldu þeirra. Gunnar segir þegar hafi orðið vart við færri bókanir skipa til íslenskra hafna og að tekjur hins opinbera geti dregist saman um allt að 1,7 milljarða króna.
Samkvæmt skýrslu Reykjavík Economics fyrir Hafnasamband Íslands geti aukin skattheimta dregið úr eftirspurn og þar með heildartekjum ríkisins. Gunnar leggur til að innleiðingu breytinganna verði seinkað og áhrif þeirra metin áður en lengra er haldið.
