Góð síldarvertíð í vinnslunni í Neskaupstað

Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur á yfirstandandi vertíð tekið á móti rúmlega 15.000 tonnum af síld til vinnslu. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.
Að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar, rekstrarstjóra fiskiðjuversins, hefur vinnslan gengið afar vel og hráefnið verið gott. Stærsta síldin er heilfryst, en um þessar mundir eru einnig framleidd samflök og roðlaus flök.
Skipið Börkur NK kom í gær til hafnar með 860 tonn af síld. Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri segir vertíðina hafa gengið vel í alla staði. „Þessi túr stóð í þrjátíu tíma og aflinn fékkst í þremur holum í Bakkaflóadýpinu. Síldin nú er heldur smærri en áður, en engu að síður mjög góð og hæfir vel til vinnslu,“ segir Hálfdan.
Að hans sögn er ávallt eitthvað af íslenskri sumargotssíld í aflanum, en meirihlutinn er norsk–íslensk síld. Nú fer að líða að lokum vertíðarinnar og í kjölfarið hefjast veiðar á íslenskri sumargotssíld.

