Tólf eldislaxar staðfestir úr íslenskum ám

Matvælastofnun, Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun hafa birt sameiginlega stöðuskýrslu um upprunagreiningu laxa sem veiðst hafa í íslenskum ám sumarið 2025. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvort laxar sem veiðast í ám landsins séu villtir eða upprunnir úr eldi.
Alls hafa 23 laxar borist Hafrannsóknastofnun til rannsóknar og erfðagreiningar, auk 11 laxa sem sendir hafa verið til greiningar en ekki skilað til stofnunarinnar. Af þeim fiskum sem greindir hafa verið reyndust níu vera eldislaxar og þrír til viðbótar sem ekki var skilað inn, samtals 12 staðfestir eldislaxar. Hinir 22 fiskarnir reyndust vera með villtan uppruna.
Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará. Eitt nýtt sýni úr Ytri-Rangá, sem veiddist í byrjun október, er nú í greiningu.
Matvælastofnun vinnur áfram að rannsókn á uppruna eldislaxanna þar sem erfðagreining nýtist til að rekja feril fiskanna frá seiðastöð til sjókvíar. Niðurstöður þeirrar rannsóknar verða birtar þegar stjórnsýslulegu ferli er lokið og eftirlitsskýrslur verða settar á mælaborð fiskeldis. Þrír eldislaxar eru þó útilokaðir frá rannsókninni þar sem ekki var hægt að rannsaka þá með fullnægjandi hætti vegna þess að þeir bárust ekki Hafrannsóknastofnun.
Af þeim 14 löxum sem skilað var til Hafrannsóknastofnunar og reyndust vera villtir höfðu margir einhver ytri einkenni sem bentu til mögulegs eldisuppruna. Erfðagreining staðfesti þó að um villta laxa var að ræða. Slík útlitseinkenni geta meðal annars verið aflöguð trjóna, slitnir ugga- eða tálknbörð og eyddur sporður, en þau geta einnig komið fram hjá villtum fiskum sem orðið hafa fyrir hnjaski við hrygningu.
Af villtu löxunum voru 10 með merki um fyrri hrygningu. Sjö þeirra voru að koma til annarrar hrygningar, tveir til þeirrar þriðju og einn til fjórðu hrygningar.
Stofnanirnar þrjár leggja áherslu á mikilvægi þess að veiðimenn og veiðiréttarhafar skili fiskum til rannsókna ef grunur leikur á að þeir séu eldislaxar. Fiskarnir þurfa að skila sér í heilu lagi til Hafrannsóknastofnunar svo unnt sé að framkvæma fullnægjandi erfða- og upprunagreiningu.
Matvælastofnun, Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun munu halda áfram samstarfi við rannsóknir á málinu og birta frekari upplýsingar þegar nýjar niðurstöður liggja fyrir.
Staðfestir eldislaxar:
- Haukadalsá 4
- Vatnsdalsá 3
- Bladna 2
- Hrútafjarðará 1
- Miðfjarðará 1
- Reykjadalsá Borgarfirði 1


