Styttist í lok síldveiða

Deila:

Á vef Síldarvinnslunnar greint frá því að nú liði að lokum veiða á norsk – íslenskri síld austur af landinu. Beitir NK hafi komið til Neskaupstaðar í morgun með 1.050 tonn og hófst strax vinnsla á aflanum í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Beitir hafi veitt í Bakkaflóadýpinu.

Rætt er við Geir Sigurpál Hlöðversson rekstrarstjóra fiskiðjuversins, sem segir að vinnsla gangi vel.

„Síldin sem nú berst að landi er heldur smærri en sú sem fékkst fyrr á vertíðinni og það þýðir að heldur minna af henni er heilfryst en meira flakað. Nú eru það tvö skip sem sjá okkur fyrir hráefni og það eru Beitir og Börkur. Börkur er nú að veiðum í Norðfjarðardýpinu og er að fiska mjög vel. Í fiskiðjuverinu er unnið á tvískiptum vöktum og upp á síðkastið hefur fólkið fengið helgarfrí,” er haft eftir honum.

Deila: