Álag á hafið og vernd lífríkis til umræðu

Deila:

Næsta málstofa Hafrannsóknastofnunar verður haldin miðvikudaginn 16. október kl. 12.30 undir yfirskriftinni Handan vendipunkta – margir álagsþættir varðandi vernd líffræðilegs fjölbreytileika í hafi (e. Beyond tipping points: safeguarding biodiversity in an ocean facing multiple stressors). Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku af Dr. Sam Dupont, prófessor við Háskólann í Gautaborg í Svíþjóð og starfsmaður Hafrannsóknastofnunar í hlutastarfi.

Í erindi sínu fjallar Dr. Dupont um hvernig álag á hafið eykst stöðugt vegna ofnýtingar, eyðingar búsvæða, mengunar, loftslagsbreytinga og súrnunar sjávar. Þessir þættir hafa víðtæk áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika og þar með á heilsu manna og samfélög almennt. Þrátt fyrir að vísindaleg þekking bendi skýrt til þess að aðgerða sé þörf, hefur reynslan sýnt að upplýsingar einar og sér eru ekki nægilegur drifkraftur breytinga.

Dupont bendir á að stjórnun margra álagsþátta byggi enn á eiturefnavistfræði sem einblínir á þröskulda eða vendipunkta, en slíkur rammahugsun geti verið ófullnægjandi þegar fjallað er um loftslagsbreytingar og súrnun sjávar. Hann mun ræða takmarkanir og áhættur slíkrar nálgunar og fjalla um mögulegar lausnir til að efla vernd líffræðilegs fjölbreytileika í hafinu.

Dr. Sam Dupont hefur um árabil verið leiðandi í rannsóknum á áhrifum súrnunar sjávar og annarra álagsþátta. Hann hefur birt yfir 300 vísindagreinar og komið að ráðgjöf til stjórnvalda, IPCC og annarra vísindanefnda á alþjóðavettvangi. Hann mun starfa í hlutastarfi hjá Hafrannsóknastofnun næstu tvö árin.

Málstofan verður haldin í fyrirlestrarsal Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 á jarðhæð og einnig í boði að fylgjast með henni á Teams.

Deila: