Ráðgjöf upp á 44 þúsund tonn

Byggt á loðnumælingum rannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Tarajoq í síðasta mánuði og samkvæmt gildandi aflareglu, hefur Hafrannsóknastofnun ráðlagt hámarksafla upp á 43.766 tonn af loðnu fyrir fiskveiðiárið 2025/2026.
Ráðgjöfin er í samræmi við upphaflega ráðgjöf sem byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2024. Hún verður þó endurmetin í byrjun árs 2026 þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir.
Mælingar skipanna fóru fram á tímabilinu 23. ágúst til 22. september 2025 og er talið að leiðangurinn hafi náð yfir allt útbreiðslusvæði loðnustofnsins. Loðnan reyndist nokkuð jafndreifð og mælingin hafði fremur lágan breytistuðul, sem gefur til kynna áreiðanlegar niðurstöður.
Samkvæmt mælingunum nam heildarmagn loðnu 1,209 milljónum tonna, þar af var kynþroski hluti stofnsins 418 þúsund tonn. Út frá niðurstöðum bergmálsmælinga og afránslíkans kemur fram að með afla upp á 65.650 tonn næst markmið aflareglunnar um að skilja eftir að lágmarki 114 þúsund tonn til hrygningar með 95% líkum. Í varúðarskyni er þó ráðlagt að miða við tvö þriðju þess afla, eða 43.766 tonn.
Magn ókynþroska loðnu mældist um 119 milljarðar einstaklinga, sem er fimmta hæsta mæling á ungloðnu frá upphafi mælinga. Þetta bendir til þess að 2024 árgangurinn sé stór og sambærilegur við 2019 árganginn, sem gaf mikinn afla á vertíðunum 2021/22 og 2022/23.
Niðurstöðurnar munu jafnframt nýtast við mótun ráðgjafar um upphafsaflamark fyrir fiskveiðiárið 2026/2027, sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) gefur út í júní á næsta ári.

