50 ár frá 200 mílum

Deila:

Í dag, 15. október 2025, eru liðin 50 ár frá því að íslensk stjórnvöld færðu fiskveiðilögsöguna út í 200 sjómílur — einni afgerandi ákvörðun í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar á 20. öld. Með breytingunni stækkaði lögsagan úr um 216 þúsund ferkílómetrum í tæplega 760 þúsund ferkílómetra. Landhelgisgæslan greinir fá þessu á vef sínum.

Í ávarpi Geirs Hallgrímssonar, þáverandi forsætisráðherra, til þjóðarinnar þann 15. október 1975 sagði hann meðal annars:

„Lífsbjörg okkar er í veði og málstaður okkar svo sterkur, að sigur mun vinnast með fullum yfirráðum Íslendinga yfir fiskimiðunum.“

Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra á þessum tíma, sagði í samtali við Morgunblaðið sama dag að með gildistöku nýju reglugerðarinnar yrðu lagðar „stórauknar skyldur á Landhelgisgæsluna“ og að fyrirséð væri að verkefni hennar myndu margfaldast.

Spá ráðherrans reyndist rétt, því í kjölfarið hófst harðasta þorskastríðið milli Íslands og Bretlands, þar sem kom til ásiglinga breskra verndarskipa og botnvörpuklippinga íslenskra varðskipa.

Sumarið 1976 náðust sáttir í deilunni. Samkomulag var gert um að 24 breskir togarar mættu veiða innan 200 mílna lögsögunnar til 1. desember sama ár, og síðan ekki meir. Með því lauk áratugalangri baráttu Íslendinga fyrir yfirráðum yfir eigin fiskimiðum — og markaði sú ákvörðun upphaf nýrrar aldar í íslenskum sjávarútvegi.

Deila: