Blíða á miðunum fyrir austan

Veðurblíðan á Austfjörðum það sem af er októbermánuði hefur verið einstök og oft minnt á bestu sumarblíðu. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.
Í fréttinni segir að hitastigið hafi veirð um og yfir 20 gráðu og lognið engu líkt. „Það er gömul saga og ný að veðurfar hefur mikil áhrif á mannfólkið og sumarauki af þessu tagi er svo sannarlega vel þeginn eystra. Blíðan veldur því að jafnvel brúnin á svartsýnustu mönnum lyftist verulega og brosandi andlit er víða að sjá.”

