Hrönn verðlaunuð fyrir góðan árangur

Deila:

Hrönn Egilsdóttir, sjávarlíffræðingur og sviðstjóri umhverfis og vöktunar hjá Hafrannsóknarstofnun, hlaut heiðursverðlaun Líffræðifélags Íslands 2025 fyrir góðan árangur í upphafi vísindaferils síns.

Hrönn hefur lagt mikla áherslu á rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga og súrnunar sjávar á vistkerfi hafsins og viðkvæma lífveruhópa á borð við kórala og aðrar kalkmyndandi tegundir. Niðurstöður rannsókna hennar hafa verið birtar í virtum alþjóðlegum vísindaritum og vakið athygli bæði hér á landi og erlendis.

Hún hefur jafnframt unnið að miðlun vísindalegrar þekkingar til almennings og tekið þátt í grunnrannsóknum á botnvistkerfum íslenskra hafsvæða, þar sem hún hefur lagt áherslu á að varpa ljósi á sérstöðu og verndargildi þeirra.

Verðlaunin voru afhent á Líffræðiráðstefnunni 2025 af Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Heimild: Náttúrufræðistofnun Íslands

Deila: