Arthur og Örn hætta hjá LS

Deila:

Bæði Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, og Örn Pálsson, framkvæmdastjóri sambandsins, hafa ákveðið að láta af störfum. Þeir greindu frá þessu í dag á fyrri degi aðalfundar LS, en nýr formaður verður kjörinn á morgun.

Arthur var einn helsti hvatamaður að stofnun Landssambandsins árið 1985 og fyrsti kjörni formaður þess. Í ræðu sinni kvaddi hann með því að minna á að sambandið væri nú 40 ára og hefði í nær hálfa öld barist fyrir hagsmunum smábátaeigenda og sjálfbærum veiðum.

Hann gagnrýndi áframhaldandi vandamál í fiskveiðistjórnun og sagðist sárastur yfir því að baráttumál sem sett voru á dagskrá á fyrsta degi væru enn óleyst. Að lokum þakkaði Arthur öllum sem unnið hafa með sambandinu, sérstaklega Erni Pálssyni, sem væri vinnusamasti maður sem hann hefði kynnst.

Deila: