Sundabraut gæti haft áhrif á búsvæði laxfiska

Rannsókn Hafrannsóknastofnunar sýnir að fyrirhuguð Sundabraut gæti haft áhrif á far og búsvæði laxfiska úr Elliðaám, Úlfarsá og Leirvogsá. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar nýta lax og sjóbirtingur strandsvæði Leiruvogs og sundin þar fyrir utan bæði til fæðuöflunar og á göngu sinni milli ferskvatns og sjávar.
Í rannsókninni voru 88 laxar og sjóbirtingar merktir með hljóðsendum sumarið 2024. Um 70 prósent fullorðinna sjóbirtinga úr Elliðaám gengu til sjávar og inn á áhrifasvæði Sundabrautar í Leiruvogi, og flest seiði úr Úlfarsá og Leirvogsá dvöldu þar stóran hluta sumarsins.
Fram kemur að breytingar á straumum og setflutningi vegna landfyllinga og brúargerðar geti haft áhrif á lífríki botnsins og þar með á fæðu laxfiska. Líkön sýna að straumhraði gæti margfaldast um brúarop við Leiruvog, sem gæti gert seiðum erfitt fyrir að synda gegn straumnum.
Hafrannsóknastofnun leggur til að framkvæmdum verði hagað utan göngutíma laxfiska og að komið verði á reglulegri vöktun meðan á framkvæmdum stendur og eftir að Sundabraut verður tekin í notkun.
Á myndinni: Staðsetning hlustunardufla í ósum og strandsjó á áhrifaleið Sundabrautar árið 2024.

