Aflavana bátur í Norðfirði

Deila:

Rétt fyrir klukkan tvö í dag barst beiðni um aðstoð frá fiskibát sem varð aflvana utanvert í Norðfirði. Fjórir menn voru um borð í bátnum, sem var staddur um 2,5 sjómílur austur af Neskaupstað þegar bilanir urðu.

Báturinn var þó nokkuð nærri landi og settu skipverjar út rekankeri á meðan beðið var aðstoðar. Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar á Neskaupstað var kölluð út og lagði skipið úr höfn um tíu mínútum eftir að útkall barst.

Á meðan hafði lítill skemmtibátur komið að fiskibátnum og komið spotta á milli þeirra svo halda mætti bátnum í réttri stöðu. Þá var fiskibáturinn kominn um eina sjómílu frá landi. Veður var hæglátt og ekki talin mikil hætta fyrir áhöfnina.

Áhöfn Hafbjargar kom fljótlega á vettvang, tók bátinn í tog og var haldið inn fjörðinn til Neskaupstaðar. Um fimmtán mínútum eftir útkall var lagt af stað inn og var komið til hafnar um klukkan þrjú í dag.

Með fréttinni fylgir ljósmynd sem tekin var um borð í Hafbjörgu í dag.

Deila: