Þórunn seld til Loðnu­vinnslunnar – 20 sagt upp

Deila:

Undirritaður hefur verið samningur um sölu fiskiskipsins Þórunnar Sveinsdóttur VE-401 til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Í kjölfar sölunnar verður áhöfn skipsins, alls um 20 manns, sagt upp störfum. Samningurinn er gerður með fyrirvara um forkaupsrétt Vestmannaeyjabæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vinnslustöðvarinnar.

Þar segi að Vinnslustöðin hafi tekið við rekstri Óss og Leo Seafood á sumardaginn fyrsta árið 2023 af fjölskyldu útgerðarmannsins Sigurjóns Óskarssonar. Þá hafi Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, sagt að félagið hygðist halda áfram útgerð Þórunnar Sveinsdóttur með sömu áhöfn og engar breytingar væru fyrirsjáanlegar hjá Leo Seafood. „Félögin sem Vinnslustöðin er nú að kaupa eru vel rekin og góð,“ sagði hann þá. Áður en kaupin voru gerð nam meðalhagnaður félaganna sex (2018–2022) um 480 milljónum króna.

Í sjónvarpsþættinum Landanum 25. maí síðastliðinn lýsti Daði Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Leo Seafood, því að fjölskyldan hefði ákveðið að hætta útgerð og fiskvinnslu þar sem kvótastaðan nægði ekki til ársútgerðar, veiðigjöld kæmu í veg fyrir nýsmíði og ljóst væri að Vinnslustöðin hygðist ráðast í skipa- og vinnsluuppbyggingu. Við sölu til Vinnslustöðvarinnar héldu allir starfsmenn störfum sínum og skip og kvóti héldust í Eyjum.

Sú uppbyggingaráætlun hefur nú tekið stakkaskiptum. Samkvæmt Sigurgeiri hafa tvíföldun veiðigjalda sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur lögfest kollvarpað áformum félagsins. Í tilfelli Óss hækka veiðigjöldin um rúmar 120 milljónir króna, og fyrir samstæðu Vinnslustöðvarinnar í heild um 850 milljónir króna, þegar breytingarnar verða að fullu fram komnar.

„Sala Þórunnar Sveinsdóttur er liður í lækkun skulda félagsins, eins og við kynntum í vor,“ segir Sigurgeir. Hann staðfestir jafnframt að hætt hafi verið við áform um nýsmíði botnfiskskipa, auk þess sem áform um lokun Leo Seafood hafi verið kynnt og öllum starfsmönnum félagsins sagt upp, þó nokkrir hafi fengið endurráðningu hjá Vinnslustöðinni.

„Þetta er allt hið sorglegasta mál og þvert á stefnu Vinnslustöðvarinnar og það sem áður hefur verið sagt,“ segir Sigurgeir. „Okkar stefna var að byggja upp traust og öflugt atvinnulíf í Eyjum, samfélaginu sem og þjóðinni allri til hagsbóta. En við förum ekki með lagasetningarvaldið og verðum að hlíta því. Eina sem við getum gert er að bregðast við — og það erum við að gera með þessum ráðstöfunum sem bitna á saklausu fólki, samfélaginu í Eyjum og að lokum á þjóðinni allri.“

Vinnslustöðin óskar Loðnuvinnslunni til hamingju með kaupin og segir Þórunni Sveinsdóttur hafa reynst vel. Skipið verður afhent nýjum eigendum í lok mars.

Stjórn og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar munu í kjölfar þessarar ákvörðunar fara yfir næstu skref félagsins, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Deila: