Viðhorf Íslendinga til skelfisks rannsakað

Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit mun í samstarfi við Hafrannsóknastofnun taka þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni um þörungaeiturefni í fæðukeðju sjávar og sjálfbæra þróun á norðurslóðum.
Verkefnið, sem nefnist PHATE, er styrkt af NordForsk og sameinar tuttugu rannsóknastofnanir í sex löndum. Alls taka um fimmtíu vísindamenn þátt í verkefninu sem miðar að því að auka skilning á dreifingu eitur- og mengunarefna í Norður-Atlantshafi og meta áhrif loftslagsbreytinga á fæðuöryggi og nýtingu sjávarafurða. Hafró greinir frá þessu.
Hlutverk Rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit verður að safna og greina íslenskar, skriflegar heimildir um skelfisk í samvinnu við Hafrannsóknastofnun, sem jafnframt sinnir eiturefnamælingum í líffræðilegum hluta verkefnisins. Hluti af því ferli er að beina sjónum að menningarlegum og félagslegum þáttum, svo sem staðbundinni þekkingu og viðhorfi til sjávarafurða og heilsu, sem forsendu sjálfbærrar þróunar á norðurslóðum.
Rannsóknina leiða Auður Aðalsteinsdóttir, rannsóknarlektor og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit, og Sara Harðardóttir, svifþörungafræðingur á Umhverfissviði Hafrannsóknastofnunar. Í tengslum við verkefnið verður ráðinn nýdoktor til tveggja ára sem mun safna og greina heimildir í samanburði við önnur Norðurlönd.
Heildarstyrkur NordForsk til PHATE-verkefnisins nemur 300 milljónum króna, þar af fara 43,7 milljónir króna til rannsókna Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnunar.

