Kjartan nýr formaður LS

Kjartan Páll Sveinsson var kjörinn formaður Landssambands smábátaeigenda á landsfundi sambandsins á dögunum. Kjartan var áður formaður Strandveiðifélags Íslands og var einn í framboði til formennsku.
Kjörið markar tímamót í sögu sambandsins, en bæði formaður og framkvæmdastjóri LS tilkynntu á fundinum að þeir hygðust láta af störfum eftir áratuga farsælt starf.
Eiríkur Arthur Bogason, sem gegnt hefur formennsku í samtals yfir þrjá áratugi, lætur nú af störfum. Hann var meðal stofnenda Landssambands smábátaeigenda árið 1985 og gegndi formennsku til ársins 2013 og aftur frá 2020.
Jafnframt tilkynnti Örn Pálsson framkvæmdastjóri að hann myndi hætta störfum á árinu eftir 39 ára starf fyrir sambandið. „Nú er starfsferli mínum sem framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda að ljúka,“ sagði Örn í ræðu sinni og bætti við að hann væri að nálgast sjötugt.
Í ræðu sinni fór Örn yfir stöðu mála í greininni, þar á meðal strandveiðar og áhyggjur sjómanna af stöðvun veiða í júlí. Hann minnti á að meirihluti þjóðarinnar, rúm 72%, styddi auknar aflaheimildir til strandveiða samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Kjartan Páll tekur nú við keflinu á tímum mikilla breytinga í forystu sambandsins og hefur sjálfur verið ötull talsmaður strandveiðimanna á undanförnum árum.

